Osgood-Schlatter: Fræðsla fyrir ungmenni og aðstandendur

Patient education

Friðrik Ellert Jónsson
Friðrik Ellert Jónsson
September 17, 2025 · 5 min read

Jump to

Hvað er Osgood-Schlatter?

Osgood-Schlatter er ein algengasta ástæða verkja framan á hné hjá börnum og unglingum á vaxtarskeiði. Vandamálið tengist vaxtarkjarna (apophysis) efst á sköflungi (tibia), rétt neðan við hnéskelina, þar sem patellarsinin festist. Vaxtarkjarnar eru úr brjóski og viðkvæmari fyrir álagi en þroskað bein, sérstaklega á vaxtarkippum.

Einkenni koma yfirleitt fram hjá krökkum á aldrinum 12–15 ára. Þeir sem stunda íþróttir sem fela í sér hlaup, hopp og spörk (t.d. fótbolti, körfubolti, handbolti, frjálsar íþróttir) eru líklegri til að fá verki. Strákar greinast oftar, en stúlkur geta líka fengið Osgood-Schlatter, sérstaklega ef þær eru virkar í íþróttum.

Við mikla hreyfingu verður togið frá patellarsin á vaxtarkjarnann meira en hann þolir tímabundið, sem veldur viðkvæmni og verkjum rétt neðan við hnéskelina.

Einkenni

Helstu einkenni Osgood-Schlatter eru:

  • Verkur framan á legg: Sérstaklega á kúlunni rétt neðan við hnéskelina (tibial tuberosity). Í 75% tilvika er aðeins annað hnéð aumt.
  • Eymsli og bólga: Svæðið getur orðið aumt og jafnvel svolítið bólgið.
  • Verkur við álag: Einkenni versna við hlaup, hopp eða spörk.
  • Stífir vöðvar: Sérstaklega framan á læri (quadriceps) og kálfar.
  • Lengd einkenna: Verkirnir geta varað í 6–12 mánuði, stundum lengur (allt að 2 ár). Hjá um 10–20% geta haldist einhver einkenni til lengri tíma.

Orsakir og áhættuþættir

  1. Vaxtarkippir: Bein vaxa hraðar en vöðvar og sinar ná að lengjast → aukið tog á festu patellarsinar.
  2. Íþróttir: Hopp, hlaup og valda auknu álagi á vaxtarkjarnann.
  3. Stífir vöðvar: Sérstaklega framan á læri og aftan á læri.
  4. Kyn: Strákar oftar en stelpur, þó báðir hópar séu útsettir.
  5. Skyld vandamál: Sinding-Larsen-Johansson getur komið fram á svipuðum aldri, en þá er viðkvæmni við festu patellarsinar á hnéskelina sjálfa (ekki tibia).

Meðferð

Markmiðið er að minnka verki, bæta hreyfanleika og styrk, og gera barninu kleift að halda áfram í íþróttum án þess að einkenni versni.

Sjúkraþjálfun og álagsstjórnun

  • Fræðsla: Þetta eru vaxtarverkir og ekki hættulegt. Í lagi að hreyfa sig, en mikilvægt að hlusta á líkamann. Smávægilegur verkur er í lagi.
  • Álagsstýring:
    • Ef verkir eru vægir → halda áfram að æfa.
    • Ef verkir aukast → minnka álag, breyta æfingum eða skipta tímabundið út fyrir hjól/sund.
    • Ef verkir eru miklir → taka nokkra daga í hvíld áður en byrjað er aftur.
  • Foreldrar gegna lykilhlutverki: Stýra álagi og hvetja til réttrar framkvæmdar.
  • Kæling: Setja ís á verkjasvæðið í 10–15 mín eftir álag.
  • D-vítamín: Ráðlagður dagskammtur af lýsi eða D-vítamíni til að styðja við beinheilsu.

Teygjur og styrktaræfingar

  • Teygjur:
    • Framan á læri (quadriceps) og utanvert á læri.
    • Kálfar, ef þeir eru stífir.
  • Nudd og hreyfanleiki: Nudda framanvert og utanvert læri (allt niður að hné), nota foam rúllu eða jafnvel kökukefli.
  • Styrking: Byggja smám saman upp styrk í framanlærisvöðvum og vöðvum í kringum hné.

Stuðningstæki

  • Hlífar eða teip undir hnéskelina geta minnkað álag á festuna.

Get started for free

Start your rehabilitation journey with the Euneo app today. Get started for free with our 7-day trial.

Hear it from patients.

What recovery feels like with the right support.

Einar Gunnar Thoroddsen

I have been using the app now for six months pre and post surgery. What a benefit to use at home and in conjunction with visits to my physiotherapist. Highly recommended for physiotherapists to follow their patients.

Orri Gautur

My current physiotherapist uses Euneo which has been a life saver. I have gotten stronger and gained confidence to perform the exercises that previously caused me pain that I can now perform pain free!

Patrik Gunnarsson

Checking off the exercises and getting notified makes it so easy to stay accountable. I made tremendous progress and was back to training in just a couple of weeks.

Gene Shannon

The app has given me an easy-to-follow, structured program that keeps me accountable. With a clear exercise goal every day I'm able to make noticeable week-to-week improvements.

Thorunn08

I have always had trouble remembering how my physio told me to do the exercises I was given, this app eliminates all that trouble, with both audio and video explanations.

Oskar Einarsson

Amazing way to really do your exercises every day. With video examples you learn to execute the workouts in the right way. It reminds you every day.

Thordis1962

I broke my ankle and needed surgery last summer. With the help of the Euneo app I had great and fast progress. This was a great way to keep track of my exercise program.

Brynjar Bergsteinsson

This app helped an active 10 year old soccer boy recover from Plantar fasciitis (heel pain). I highly recommend it.

Marta Magnúsdóttir

This app finally helped me to get rid of my plantar fasciitis. Great instructional videos and very user-friendly app.

Signý Sif

This app has been a game changer for my physical therapy. It provides excellent structure and accountability, making it easy to stay on track with exercises.

Gudjon Thorsteins

Definitely recommend for someone struggling with not being able to track progress!

SammiMK

Great app that keeps me on track to do my exercises. Simple to use and easy to follow instructions.

Hlynur Guðmundsson

Perfect app

Continue reading