Verkur í kringum hnéskel (PFPS): Fræðsla fyrir ungmenni og aðstandendur

Patient education

Friðrik Ellert Jónsson
Friðrik Ellert Jónsson
September 17, 2025 · 5 min read

Jump to

Hvað er Patellofemoral pain syndrome (PFPS)?

Verkur í kringum hnéskel (PFPS) eru algengt vandamál hjá ungum jafnt sem eldri. Verkurinn er yfirleitt í kringum eða fyrir aftan hnéskelina.

Krakkar og unglingar finna oft fyrir þessum verk við álag eins og hlaup, hopp, stigagang eða þegar þeir hníga niður í hnébeygju. Verkirnir geta líka komið fram eftir að hafa setið lengi kyrr.

Góðu fréttirnar eru þær að PFPS bregst yfirleitt vel við æfingum og einföldum breytingum á daglegu álagi.

Einkenni

  • Verkur framan á hné, í kringum eða fyrir aftan hnéskelina.
  • Aukinn verkur við hreyfingu (hlaup, hopp, stigar, hnébeygjur).
  • Óþægindi við að sitja lengi kyrr.
  • Sumir heyra smell eða nuddhljóð í hnénu við hreyfingu – það er ekki hættulegt og þýðir ekki að eitthvað sé „skemmt“.

Hversu algengt er þetta?

PFPS er ein algengasta ástæða hnéverkja bæði hjá unglingum og fullorðnum. Rannsóknir sýna að allt að fjórðungur fullorðinna og þriðjungur unglinga finnur fyrir einkennum einhvern tíma á lífsleiðinni. Konur greinast oftar en karlar. Vandamálið kemur bæði fram hjá íþróttafólki og þeim sem stunda litla hreyfingu.

Orsakir og áhættuþættir

Patellofemoral verkur kemur oft fram án þess að nein ákveðin meiðsli hafi orðið. Einkennin tengjast yfirleitt samspili álags, styrks og hreyfimynstra.

Helstu þættir sem geta valdið eða aukið verkina:

  • Nýtt eða aukið álag (t.d. byrja að hlaupa meira, taka þátt í nýrri íþrótt).
  • Tímabil með minni hreyfingu → vöðvar veikjast og hnéð verður viðkvæmara.
  • Slappir vöðvar í kringum hné og mjaðmir.
  • Skór sem veita lítinn stuðning.
  • Langvarandi kyrrseta í daglegu lífi.
  • Yfirþyngd → eykur þrýsting á hnén.

Meðferð

Markmiðið er að minnka verki, styrkja hnéð og vöðvana í kringum það, og gera krakkanum kleift að hreyfa sig áhyggjulaust.

Sjúkraþjálfun og álagsstjórnun

  • Fræðsla: Þetta ástand er ekki hættulegt. Það er í lagi að hreyfa sig, en mikilvægt er að hlusta á líkamann. Smávægilegur verkur er í lagi, en ef verkir aukast mikið þarf að breyta álaginu.
  • Álagsstýring:
    • Halda áfram að hreyfa sig en stilla niður álag ef verkir versna.
    • Breyta æfingum tímabundið, t.d. hjóla eða synda í stað mikils hlaupa.
    • Nota verkjaskala (0–10):
      • 0–2 → æfa áfram
      • 3–5 → breyta álagi, æfa sjaldnar
      • 6+ → hvíla í nokkra daga og byrja svo rólega aftur

Æfingar

  • Styrking:
    • Vöðvar í kringum mjaðmir (abductorar, extensora, lateral rotatorar).
    • Vöðvar innanvert á læri (m. vastus medialis).
  • Teygjur:
    • Framan á læri og utanvert á læri.
  • Losa um stífa vöðva: Foam rúlla eða bolti utanvert á læri.

Stuðningur

  • Líkamsstaða: forðast að læsa hnjám eða „skella mjöðm út til hliðar“.
  • Teip eða hnéhlífar geta hjálpað til við að minnka verki og styðja hnéskelina í hreyfingu.

Get started for free

Start your rehabilitation journey with the Euneo app today. Get started for free with our 7-day trial.

Hear it from patients.

What recovery feels like with the right support.

Einar Gunnar Thoroddsen

I have been using the app now for six months pre and post surgery. What a benefit to use at home and in conjunction with visits to my physiotherapist. Highly recommended for physiotherapists to follow their patients.

Orri Gautur

My current physiotherapist uses Euneo which has been a life saver. I have gotten stronger and gained confidence to perform the exercises that previously caused me pain that I can now perform pain free!

Patrik Gunnarsson

Checking off the exercises and getting notified makes it so easy to stay accountable. I made tremendous progress and was back to training in just a couple of weeks.

Gene Shannon

The app has given me an easy-to-follow, structured program that keeps me accountable. With a clear exercise goal every day I'm able to make noticeable week-to-week improvements.

Thorunn08

I have always had trouble remembering how my physio told me to do the exercises I was given, this app eliminates all that trouble, with both audio and video explanations.

Oskar Einarsson

Amazing way to really do your exercises every day. With video examples you learn to execute the workouts in the right way. It reminds you every day.

Thordis1962

I broke my ankle and needed surgery last summer. With the help of the Euneo app I had great and fast progress. This was a great way to keep track of my exercise program.

Brynjar Bergsteinsson

This app helped an active 10 year old soccer boy recover from Plantar fasciitis (heel pain). I highly recommend it.

Marta Magnúsdóttir

This app finally helped me to get rid of my plantar fasciitis. Great instructional videos and very user-friendly app.

Signý Sif

This app has been a game changer for my physical therapy. It provides excellent structure and accountability, making it easy to stay on track with exercises.

Gudjon Thorsteins

Definitely recommend for someone struggling with not being able to track progress!

SammiMK

Great app that keeps me on track to do my exercises. Simple to use and easy to follow instructions.

Hlynur Guðmundsson

Perfect app

Continue reading