Sever's disease: Fræðsla fyrir ungmenni og aðstandendur

Patient education

Friðrik Ellert Jónsson
Friðrik Ellert Jónsson
September 17, 2025 · 5 min read

Jump to

Hvað er Sever’s?

Sever’s er ein algengasta ástæða hælverkja hjá börnum og unglingum sem eru að vaxa. Hann tengist vaxtarkjarna (apophysis) hælsins, nánar tiltekið þar sem hásinin (Achilles sinin) festist við hælbeinið (calcaneus). Vaxtarkjarnar eru svæði úr brjóski sem síðar styrkjast og breytast í bein en þeir eru viðkvæmari fyrir álagi meðan þeir eru að þroskast.

Einkenni koma yfirleitt fram hjá börnum á aldrinum 7–15 ára, sérstaklega á vaxtarkippum. Á þessum tímabilum vaxa beinin hraðar en vöðvar og sinar. Þetta veldur spennu í fótleggjum og fótum sem getur sett aukið álag á hælinn og valdið vaxtarverkjum.

Hjá virkum krökkum er hællinn undir miklu álagi t.d. við hlaup og hopp. Þá getur vaxtarkjarninn orðið viðkvæmur og birtist sem verkur eða þreifieymsli í hælnum sem versnar við áreynslu.

Einkenni

Einkenni Sever’s koma oftast fram sem verkur í hæl. Einkennin geta varað í nokkrar vikur eða mánuði, en ganga yfirleitt til baka með réttri meðferð. Helstu einkenni eru:

  • Hælverkur: Algengast er verkur í öðrum eða báðum hælum, aftarlega eða neðarlega á hælnum.
  • Eymsli og bólga: Svæðið getur verið viðkvæmt og bólgið.
  • Verkur við hreyfingu: Verkirnir aukast gjarnan við íþróttir, sérstaklega hlaup eða hopp.
  • Hökkt eða tágangur: Krakkarnir hlífa sér með því að haltra eða ganga á tám.
  • Stirðleiki: Sérstaklega á morgnana eða eftir kyrrsetu.

Orsakir og áhættuþættir

Aðalorsök Sever’s er endurtekið álag á vaxtarkjarnana í hælnum. Nokkrir þættir auka líkur á verkjunum.

  1. Vaxtarkippir: Þegar beinin vaxa hraðar en vöðvar og sinar (yfirleitt 8–12 ára). Þetta veldur aukinni spennu á hælinn sem getur valdið verkjum.
  2. Íþróttir og hreyfing: Börn sem stunda íþróttir eins og fótbolta, körfubolta, frjálsar íþróttir eða fimleika eru í aukinni áhættu.
  3. Fótagerð: Börn með flata fætur (lág bogi) eða stutta kálfavöðva eru útsettari.
  4. Óhentugir skór: Skór sem henta íþróttinni illa eða veita lítinn stuðning - dreifa ekki höggum rétt og leggja aukið álag á hælinn.
  5. Ofþyngd: Aukin líkamsþyngd veldur meiri þrýstingi á fætur og hæla.

Meðferð

Markmiðið með meðferð er að draga úr verkjum, styrkja nærliggandi vöðva og gera krakkanum kleift að snúa aftur í íþróttir og hreyfingu. Flestar meðferðir fela í sér sjúkraþjálfun og álagsstýringu. En einnig er hægt að nota stuðningstæki líkt og gelhæla og innlegg (orthotics).

Sjúkraþjálfun og álagsstjórnun

  • Kæling: Nota ís á svæðið eftir álag til að draga úr verk og auka vellíðan.
  • Álagsstjórnun: Þetta ástand er ekki hættulegt og það er í lagi að halda áfram að hreyfa sig. Mikilvægt er að barnið finni út hvað það ræður við og læri að hlusta á líkamann. Smávægilegur verkur er eðlilegur, en æfingar ættu að vera stilltar af eftir styrkleika einkenna.
    • Vernda svæðið: Draga úr álagi þegar þörf krefur, t.d. með því að skipta hlaupum út fyrir hjól eða sund. Einnig er hægt að nota spelkur, hlífar, teip eða gelhæla til að minnka álagið á hælinn.
    • Foreldrar gegna lykilhlutverki: Þeir hjálpa til við að stýra álagi og halda utan um framvindu.
    • Verkjaskali (0–10):
      • 0–2: Í lagi að æfa áfram.
      • 3–5 (gult ljós): Æfa 2–3 hvern dag.
      • 6 eða meira: Taka 5 daga frí og byrja svo rólega aftur.
  • Teygjur og styrktaræfingar: Sérstaklega teygjur á kálfavöðvum (bæði með beinu og bognu hné) og styrktaræfingar eins og hællyftur.

Stuðningstæki (orthotics)

Stuðningsinnlegg eða gelhælar geta hjálpað með því að:

  • draga úr höggum við hlaup og hopp,
  • lyfta hælnum örlítið til að minnka spennu á hásinina.

Þetta er sérstaklega gagnlegt fyrir börn sem vilja halda áfram í íþróttum.

Get started for free

Start your rehabilitation journey with the Euneo app today. Get started for free with our 7-day trial.

Hear it from patients.

What recovery feels like with the right support.

Einar Gunnar Thoroddsen

I have been using the app now for six months pre and post surgery. What a benefit to use at home and in conjunction with visits to my physiotherapist. Highly recommended for physiotherapists to follow their patients.

Orri Gautur

My current physiotherapist uses Euneo which has been a life saver. I have gotten stronger and gained confidence to perform the exercises that previously caused me pain that I can now perform pain free!

Patrik Gunnarsson

Checking off the exercises and getting notified makes it so easy to stay accountable. I made tremendous progress and was back to training in just a couple of weeks.

Gene Shannon

The app has given me an easy-to-follow, structured program that keeps me accountable. With a clear exercise goal every day I'm able to make noticeable week-to-week improvements.

Thorunn08

I have always had trouble remembering how my physio told me to do the exercises I was given, this app eliminates all that trouble, with both audio and video explanations.

Oskar Einarsson

Amazing way to really do your exercises every day. With video examples you learn to execute the workouts in the right way. It reminds you every day.

Thordis1962

I broke my ankle and needed surgery last summer. With the help of the Euneo app I had great and fast progress. This was a great way to keep track of my exercise program.

Brynjar Bergsteinsson

This app helped an active 10 year old soccer boy recover from Plantar fasciitis (heel pain). I highly recommend it.

Marta Magnúsdóttir

This app finally helped me to get rid of my plantar fasciitis. Great instructional videos and very user-friendly app.

Signý Sif

This app has been a game changer for my physical therapy. It provides excellent structure and accountability, making it easy to stay on track with exercises.

Gudjon Thorsteins

Definitely recommend for someone struggling with not being able to track progress!

SammiMK

Great app that keeps me on track to do my exercises. Simple to use and easy to follow instructions.

Hlynur Guðmundsson

Perfect app

Continue reading