Markmið okkar
Að hjálpa fólki að taka þátt í eigin bata.
Sjúkraþjálfari hittir skjólstæðing yfirleitt í hálftíma á viku. Það er 0,3% af vikunni. Hin 99,7% er fólk heima, í vinnunni og í daglegu amstri. Þar fer endurhæfingin fram. Við stofnuðum Euneo til að styðja fólk þar.
Flestir sem koma í sjúkraþjálfun vilja það sama: frelsi til að gera það sem skiptir þá máli, án þess að verkir eða meiðsli haldi aftur af þeim. Æfingarnar eru leiðin þangað. Endurhæfing er ekki eitthvað sem er gert við þig, heldur eitthvað sem þú tekur þátt í og þarft að sinna.
Meiðsli og verkir taka á og þá hjálpar að vita hvert þú ert að stefna. Með Euneo ertu með skýra áætlun frá sjúkraþjálfaranum þínum. Þú veist hvað þú átt að gera, sérð hvernig þér miðar áfram og getur fylgt áætluninni af öryggi.
Það sem þú byggir upp nýtist þér lengi eftir að endurhæfingunni lýkur: styrkur, hreyfigeta og betri heilsa.
Skjólstæðingur kemur aftur og framvindan er minni en þú vonaðist til. Eru æfingarnar ekki að virka, eða voru þær aldrei gerðar? Oftast er engin leið að vita það. Þú spyrð, færð kurteist svar og giskar.
Með Euneo sérðu hvað var gert, hvernig það gekk og hvernig líðanin hefur þróast, áður en þú spyrð. Tíminn byrjar ekki á ágiskun og nýtist í það sem skiptir mestu máli.
Það sem fólk gerir á milli tíma er stærsti hluti meðferðarinnar. Appið hjálpar, en það mikilvægasta er ekki appið heldur þú: hvernig þú fræðir skjólstæðinginn og fylgir meðferðinni eftir. Euneo er gert til að styðja það, án þess að þú vinnir lengri daga.
Euneo er íslenskt fyrirtæki, stofnað í Reykjavík árið 2021 og þróað í samstarfi við starfandi sjúkraþjálfara.
Flestar af stærstu stofum landsins nota Euneo nú með skjólstæðingum sínum. Í könnun meðal notenda segjast 74% æfa meira og 93% segja upplifun sína af sjúkraþjálfun betri með Euneo.
Euneo er borið fram jú-neó. Nafnið er sótt í grísku: eu þýðir gott og neo þýðir nýtt.