Gæðakerfi Euneo
Þið sinnið fólkinu ykkar. Gögnin um þjónustuna, gæðastarfið og árangurinn safnast í bakgrunninum.
Sjúkraþjálfun Kópavogs
Sjúkraþjálfun Íslands
Endurheimt heilsumiðstöð
Heilsuhreysti
Sjúkraþjálfun Akureyrar
Sjúkraþjálfun Kópavogs
Sjúkraþjálfun Íslands
Endurheimt heilsumiðstöð
Heilsuhreysti
Sjúkraþjálfun Akureyrar
Höfn sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfun Styrkur
Sjúkraþjálfun Suðurnesja
Sjúkraþjálfun Selfoss
Hæfi endurhæfingarstöð
Höfn sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfun Styrkur
Sjúkraþjálfun Suðurnesja
Sjúkraþjálfun Selfoss
Hæfi endurhæfingarstöð

Gæðastarf er ekki bara skýrsla eða stök þjónustukönnun. Það er starf sem er alltaf í gangi og þarfnast utanumhalds og eftirfylgni. Gæðakerfi Euneo einfaldar það fyrir ykkur.
Gæðavísar
Gögn sem styðja við skyldubundnu staðlana um mat, meðferðaráætlun, framkvæmd, endurmat, þjónustu og gæðaaukningu. Þið setjið markmiðin og fylgist með þróuninni á mælaborði.

Þjónustukönnun
Könnunin er alltaf í gangi í bakgrunninum, án þess að þið þurfið að halda utan um hana. Spurningarnar ná yfir viðmót, aðgengi, fræðslu og þátttöku, svörin safnast jafnóðum og skýrslan er unnin sjálfkrafa.

Þjónustukönnun
Skjólstæðingar svara þegar þeim hentar, í appinu eða á spjaldtölvu í móttöku, á íslensku, ensku eða pólsku. Ábendingar berast ykkur jafnóðum.

Mælitæki
Starfsheildin velur mælitækin. Grunnmæling og endurmat berast skjólstæðingnum sjálfkrafa í appinu og niðurstöðurnar eru reiknaðar og teknar saman.

Árangur
Mælingar hvers skjólstæðings leggjast saman í eina mynd: meðferðarheldni, verkir og mælitæki eftir tímabilum og teymum. Árangurinn ykkar verður sýnilegur.

Meðferðaráætlanir
Hver skjólstæðingur fær gagnreynda meðferðaráætlun í appinu og fylgir henni heima á milli tíma. Vinnubrögð og eftirfylgni verða samræmd milli sjúkraþjálfara, svo allir skjólstæðingar fá sama stuðning.

Allt árið
Raunveruleg yfirsýn eftir sjúkraþjálfurum og teymum, sem grunnur að teymisvinnu og faglegri þróun.
Sömu viðmið gilda um alla starfsheildina.
Ársskýrslan
Gögnin safnast allt árið: gæðavísar, mælitæki, árangur og niðurstöður þjónustukönnunar.
Þegar kemur að ársskýrslunni eru lykilgögnin þegar til.
Allt sem sjúkraþjálfari notar með skjólstæðingi er áfram frítt.
Frítt fyrir sjúkraþjálfara
Fyrir sjúkraþjálfara. Skjólstæðingar greiða áskrift að appinu.
Fyrir starfsheildina
Valfrjáls viðbót sem heldur utan um gæðastarfið.
Við setjum kerfið upp með ykkur og erum til taks þegar þarf.
Gæðakerfið sett upp og kynnt fyrir ykkur persónulega.
Kynning fyrir sjúkraþjálfara í samráði við ykkur, sem við fylgjum eftir.
Um ykkar gæðastarf, verklag og meðferðaráætlanir.
Spjaldtölva fyrir þjónustukönnunina og skilti í móttöku.
Nýir sjúkraþjálfarar fá kynningu og komast strax af stað með ykkar verklag.
Þið eruð með tengilið hjá Euneo sem þekkir ykkar starfsheild.
Sjúkraþjálfun Íslands
„Við viljum vera í fararbroddi þegar kemur að því að veita framúrskarandi þjónustu. Innleiðing á lausnum Euneo er liður í því að styrkja gæðastarf stofunnar og veita skjólstæðingum bestu lausnir sem völ er á.“