Hvernig getum við aðstoðað?

Fáðu aðstoð

Spurningar, vandamál eða ábendingar?

Hvernig tengist ég sjúkraþjálfaranum mínum?
Sjúkraþjálfarinn þinn lætur þig fá tengikóða. Þú slærð hann inn þegar þú stofnar aðgang í appinu, eða síðar undir Stillingar → Tengingar → Bæta við tengingu.

Ef þú ert ekki með tengikóða skaltu biðja sjúkraþjálfarann þinn um hann.
Tengikóðinn minn virkar ekki
Ef þú hefur notað þennan tengikóða áður er tengingin líklega þegar komin á. Prófaðu að skrá þig inn á aðganginn sem þú notaðir upphaflega.

Virkar það samt ekki? Hafðu samband.
Hvernig segi ég upp áskriftinni?
Þú getur sagt upp hvenær sem er. Farðu í Stillingar → Aðgangur → Áskrift → Breyta áskrift. Þá opnast App Store eða Google Play, þar sem þú segir áskriftinni upp.

Þú heldur fullum aðgangi til loka greiðslutímabilsins.
Get ég fengið endurgreitt?
Endurgreiðslur fara í gegnum Apple (App Store) eða Google (Google Play), eftir því hvar þú keyptir áskriftina. Þú sækir um endurgreiðslu hjá þeim.

Ef þú lendir í vandræðum skaltu hafa samband við okkur og við hjálpum þér.
Hvað ef ég hef ekki efni á áskrift?
Við viljum að allir geti notað Euneo. Ef þú hefur ekki efni á áskrift geturðu sótt um frían aðgang á áskriftarskjánum í appinu, þar sem áskriftarleiðirnar eru sýndar.

Ef þú hefur tök á að greiða vonum við að þú gerir það. Það gerir okkur kleift að halda áfram að þróa appið.
Hvernig eyði ég aðganginum mínum?
Farðu í Stillingar → Aðgangur → Eyða aðgangi og staðfestu að þetta sért þú. Þá er aðganginum og gögnunum þínum eytt varanlega og það er ekki hægt að afturkalla.

Áskriftin fellur ekki niður þótt þú eyðir aðganginum. Segðu henni upp fyrst, eins og lýst er hér að ofan.

Ef þú vilt bara hætta að greiða en halda gögnunum þínum skaltu segja upp áskriftinni og láta aðganginn standa.
Ég fæ engar áminningar
Byrjaðu á að athuga hvort kveikt sé á tilkynningum fyrir Euneo í stillingum símans.

iPhone: Settings → Notifications → Euneo.
Android: Stillingar → Forrit → Euneo → Tilkynningar.

Ef kveikt er á þeim og þú færð samt engar áminningar skaltu hafa samband við okkur.
Áætlunin mín er horfin
Athugaðu hvort þú sért á réttum aðgangi. Farðu í Stillingar → Aðgangur til að sjá netfangið þitt.

Ef þú skiptir nýlega um síma skaltu skrá þig inn með sama aðgangi og áður.

Finnurðu hana enn ekki? Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna hana.
Hvernig skipti ég yfir á íslensku?
Farðu í Stillingar → Tungumál (Settings → Language ef appið er á ensku) og veldu íslensku eða ensku.

Þá skiptir allt appið um tungumál, líka æfingamyndböndin frá Euneo. Það sem sjúkraþjálfarinn þinn hefur skrifað sjálfur helst eins og það var skrifað.