Betri stuðningur.

Skjólstæðingar greiða áskrift að appinu. Sjúkraþjálfarar nota Euneo frítt.

Hægt að sækja um frían aðgang ef kostnaður er hindrun

Skjólstæðingar sjá um áskriftina sína í appinu. Sjúkraþjálfarar koma aldrei nálægt greiðslum.

Svona virkar þetta.

Það helsta um áskriftina og greiðslur.

Hvað kostar Euneo fyrir sjúkraþjálfara?
Ekkert. Allt sem sjúkraþjálfarar nota með skjólstæðingum sínum er ókeypis: æfingasafnið, meðferðaráætlanir og spurningalistar. Skjólstæðingar greiða áskrift að appinu.
Hvernig komast skjólstæðingar af stað?
Sjúkraþjálfarinn stofnar skjólstæðinginn, sem fær tengikóða til að tengjast í appinu. Það tekur innan við mínútu. Fyrstu 7 dagarnir eru fríir.
Hvernig virkar prufuáskriftin?
Skjólstæðingar fá fullan aðgang í 7 daga. Áskriftin er stofnuð í gegnum App Store eða Google Play en ekkert er gjaldfært fyrr en á 8. degi. Ef sagt er upp fyrir þann tíma greiða þeir ekkert.
Hvað geta skjólstæðingar notað án áskriftar?
Skjólstæðingar geta alltaf skoðað áætlunina sína, skráð verki og líðan og svarað spurningalistum, svo sjúkraþjálfarinn getur áfram fylgst með.

Með áskrift bætast við æfingamyndbönd, æfingar dagsins til að haka við og áminningar.
Hvað ef skjólstæðingur hefur ekki efni á áskrift?
Við viljum að allir geti notað Euneo. Skjólstæðingar sem hafa ekki efni á áskrift geta sótt um frían aðgang á áskriftarskjánum í appinu, þar sem áskriftarleiðirnar eru sýndar.
Hversu lengi þurfa skjólstæðingar að vera í áskrift?
Eins lengi og hún nýtist. Flestir nota appið á meðan þeir eru í endurhæfingu, oft í nokkra mánuði, og segja svo upp. Sumir halda áfram til að viðhalda æfingunum og árangrinum. Hægt er að segja upp hvenær sem er.
Hvernig geta skjólstæðingar sagt upp?
Skjólstæðingar geta sagt áskriftinni upp hvenær sem er í áskriftarstillingum App Store eða Google Play. Engin binding og ekkert uppsagnargjald. Ef þeir segja upp halda þeir fullum aðgangi til loka greiðslutímabilsins.
Þurfa sjúkraþjálfarar að sjá um greiðslur?
Nei. Sjúkraþjálfarar koma aldrei nálægt greiðslum, reikningum eða endurgreiðslum. Áskriftin er greidd í gegnum App Store eða Google Play.

Fyrir sjúkraþjálfara

Taktu næsta skref.

Sjáðu af hverju sjúkraþjálfarar velja Euneo.

Fyrir skjólstæðinga

Byrjaðu í dag.

Sæktu appið og prófaðu frítt í 7 daga.