
Fræðsla
Finnurðu fyrir verk í hælnum þegar þú tekur fyrstu skrefin á morgnana eða eftir að hafa staðið eða gengið lengi? Þú gætir verið með iljarfellsbólgu, sem er algengt vandamál í fæti og hrjáir milljónir manna um allan heim. Í þessari grein förum við yfir einkenni, orsakir og meðferð iljarfellsbólgu.
Iljarfellsbólga er vandamál sem veldur verkjum undir ilinni eða hælnum. Hún kemur fram þegar of mikið álag er á iljarfellinu, þykkri sinabreiðu sem liggur undir ilinni, frá hælnum og fram í tær. Við það breytist bygging sinabreiðunnar og litlar rifur myndast í henni.

Verknum er yfirleitt lýst sem skörpum eða stingandi og hann er verstur á morgnana eða eftir að þú hefur setið eða staðið lengi, en hann getur líka komið fram eftir göngu eða hlaup. Oftast finnst verkurinn við hælinn en hann getur líka verið framar í ilinni, nær tánum.

Hjá sumum á verkurinn það til að minnka við hreyfingu og versna svo aftur þegar henni lýkur. Aðrir geta fundið fyrir seyðingi sem ágerist smám saman við hreyfingu. Ef þú finnur fyrir þessum einkennum er líklegast að um iljarfellsbólgu sé að ræða.
Orsakir iljarfellsbólgu eru óljósar. Heitið gefur til kynna að vandamálið stafi af bólgu í sinabreiðunni. Nýlegar rannsóknir benda þó til þess að bólga sé ekki meginorsökin. Talið er að vandamálið stafi frekar af of miklu álagi á sinabreiðuna. Við það breytist bygging hennar, litlar rifur myndast í henni og hún þykknar.
Ýmsir þættir geta aukið hættuna á iljarfellsbólgu, meðal annars:
Sem betur fer dugar meðferð án inngrips flestum til að ná tökum á iljarfellsbólgu. Árangursríkasta meðferðin er blanda af æfingum og álagsstýringu.
Hafðu í huga að skurðaðgerð ætti alltaf að vera síðasta úrræðið og aðeins að koma til greina þegar önnur meðferðarúrræði hafa verið fullreynd.
Til eru ýmsar æfingar sem þú getur gert til að draga úr verkjum og stuðla að heilbrigðari fótum. Mikilvægastar eru teygjur, styrktaræfingar og sjálfsnudd fyrir sinabreiðuna, kálfavöðvana og aðra vöðva í fætinum. Ef þú ert að leita að ákveðnum æfingum til að draga úr verkjunum mæli ég með grein sem ég skrifaði um 7 mikilvægustu æfingarnar við iljarfellsbólgu.
Hafðu í huga að það skilar líklegast engum mælanlegum árangri að gera æfingarnar aðeins nokkrum sinnum. Þú þarft að halda þínu striki og gera þær vikum eða jafnvel mánuðum saman til að sjá verulegar framfarir, enda tekur endurhæfing vegna iljarfellsbólgu oftast 3–6 mánuði. Ef þú vilt byrja á áætlun við iljarfellsbólgu geturðu sótt Euneo-appið í dag og hafist handa.
Hjá flestum minnka einkennin eða hverfa alveg á 3–6 mánuðum í endurhæfingu. Algengt er að verkir minnki strax í upphafi endurhæfingarinnar, en hjá sumum getur það tekið lengri tíma. Ef þú finnur enn fyrir verkjum eða skertri færni eftir að endurhæfingunni er lokið mæli ég með að þú ráðfærir þig við heilbrigðisstarfsmann.
Þegar þú glímir við iljarfellsbólgu er nauðsynlegt að hlusta á líkamann. Ef þú hunsar viðvörunarmerkin getur vandamálið orðið langvinnt og á endanum takmarkað hreyfingu þína, sem bitnar á heilsu og lífsgæðum. Einnig er líklegt að þú breytir göngulaginu til að forðast verki og það getur leitt til vandamála í fótum, hnjám, mjöðmum eða baki. Þess vegna er brýnt að bregðast við og taka á vandanum eins fljótt og þú getur.
Reynsla fólks af appinu, með eigin orðum.
Einar Gunnar Thoroddsen
Ég hef notað appið í sex mánuði, fyrir og eftir aðgerð. Það er mikill ávinningur að nota það heima samhliða tímum hjá sjúkraþjálfaranum mínum. Mæli eindregið með því fyrir sjúkraþjálfara til að fylgja skjólstæðingum sínum eftir.
Orri Gautur
Núverandi sjúkraþjálfarinn minn notar Euneo og það hefur bjargað mér. Ég hef styrkst og öðlast sjálfstraust til að gera æfingar sem áður ollu mér verkjum og get nú gert þær verkjalaust!
Patrik Gunnarsson
Að haka við æfingarnar og fá áminningar gerir það svo auðvelt að standa við sitt. Ég tók gríðarlegum framförum og gat byrjað að æfa aftur eftir aðeins nokkrar vikur.
Gene Shannon
Appið hefur gefið mér skipulagða meðferðaráætlun sem er auðvelt að fylgja og heldur mér við efnið. Með skýrt æfingamarkmið á hverjum degi sé ég greinilegar framfarir viku frá viku.
Thorunn08
Ég hef alltaf átt erfitt með að muna hvernig sjúkraþjálfarinn sagði mér að gera æfingarnar sem ég fékk. Þetta app leysir það alveg, með útskýringum bæði í hljóði og myndbandi.
Oskar Einarsson
Frábær leið til að gera æfingarnar sínar í alvöru á hverjum degi. Með myndbandsdæmunum lærirðu að gera æfingarnar rétt. Það minnir þig á á hverjum degi.
Thordis1962
Ég ökklabrotnaði og þurfti að fara í aðgerð síðasta sumar. Með hjálp Euneo-appsins tók ég miklum og hröðum framförum. Þetta var frábær leið til að halda utan um meðferðaráætlunina mína.
Brynjar Bergsteinsson
Þetta app hjálpaði virkum 10 ára fótboltastrák að ná sér af iljarfellsbólgu (verk í hæl). Ég mæli eindregið með því.
Marta Magnúsdóttir
Þetta app hjálpaði mér loksins að losna við iljarfellsbólguna. Frábær kennslumyndbönd og mjög notendavænt app.
Signý Sif
Þetta app hefur gjörbreytt sjúkraþjálfuninni minni. Það veitir frábært skipulag og aðhald og gerir það auðvelt að halda sig við æfingarnar.
Gudjon Thorsteins
Mæli klárlega með því fyrir þá sem eiga erfitt með að fylgjast með framförum sínum!
SammiMK
Frábært app sem heldur mér við efnið í æfingunum. Einfalt í notkun og auðvelt að fylgja leiðbeiningunum.
Hlynur Guðmundsson
Fullkomið app

Iljarfellsbólga er algengt vandamál í fæti sem getur valdið miklum óþægindum og verkjum. Hér eru sjö árangursríkar æfingar sem þú getur gert heima.

Teiping getur skipt sköpum við iljarfellsbólgu. Hér lærir þú allt sem þú þarft að vita um teipingu og hvernig hún nýtist sem best.