
Fræðsla
Fyrir hlaupara er fátt jafn pirrandi og að þurfa að gera hlé á æfingum vegna meiðsla. Iljarfellsbólga er meðal algengustu meiðsla hlaupara. Ef þú hefur einhvern tíma glímt við hana veistu hversu erfið hún getur verið. En hafðu ekki áhyggjur, því að með réttri nálgun getur þú náð tökum á henni og farið aftur að hlaupa án verkja. Í þessari grein fer ég yfir allt sem þú þarft að vita um hlaup með iljarfellsbólgu.
Iljarfellsbólga er vandamál sem veldur verkjum undir ilinni eða hælnum. Hún kemur fram þegar of mikið álag er á iljarfellinu, þykkri sinabreiðu sem liggur undir ilinni, frá hælnum og fram í tær. Við það breytist bygging sinabreiðunnar og litlar rifur myndast í henni.
Verknum er yfirleitt lýst sem skörpum eða stingandi og hann er verstur á morgnana eða eftir að þú hefur setið eða staðið lengi. Á hlaupum gætir þú fundið fyrir auknum verk í fráspyrnunni. Hjá sumum á verkurinn það til að minnka við upphitun og versna svo aftur undir lok hlaupsins. Aðrir geta fundið fyrir seyðingi sem ágerist smám saman eftir því sem líður á hlaupið.
Fyrir hlaupara er nauðsynlegt að hlusta á líkamann. Ef þú hunsar viðvörunarmerki iljarfellsbólgu getur vandamálið orðið langvinnt. Það getur á endanum bitnað á árangri þínum og jafnvel orðið til þess að þú getir alls ekki hlaupið. Mikilvægt er að taka á vandamálinu um leið og einkennin gera vart við sig.
Orsakir iljarfellsbólgu eru óljósar. Heitið gefur til kynna að vandamálið stafi af bólgu í sinabreiðunni. Nýlegar rannsóknir benda þó til þess að bólga sé ekki meginorsökin. Talið er að vandamálið stafi frekar af of miklu álagi á sinabreiðuna. Við það breytist bygging hennar, litlar rifur myndast í henni og hún þykknar. Hlaupurum er sérstaklega hætt við iljarfellsbólgu vegna endurtekinna högga og álags á fæturna.
Vefir líkamans hafa ákveðið álagsþol, það er að segja getu til að þola það álag sem á þá er lagt. Þegar álagið á vef fer yfir álagsþol hans getur þú fundið fyrir verkjum. Þetta getur gerst þegar þú eykur magn, tíðni eða ákefð æfinga. Í stuttu máli er þá of mikið gert of snemma, án þess að vefurinn fái nægan tíma til að jafna sig og laga sig að auknu álagi. Þetta getur líka gerst þegar álagsþol vefjanna minnkar, en það getur stafað af ýmsu, meðal annars hækkandi aldri, streitu, ónógum svefni og ófullnægjandi næringu.
Aðrir þættir, svo sem stífir kálfavöðvar, fallinn iljarbogi, veikir mjaðmavöðvar og óhentugur skóbúnaður, geta einnig haft áhrif á vandamálið.
Stutta svarið er já, en farðu varlega. Eftir því hversu slæm iljarfellsbólgan er gætir þú þurft að taka hlé frá hlaupum eða breyta æfingunum. Mikilvægt er að hlusta á líkamann og pína sig ekki áfram þrátt fyrir verki. Ef þú heldur áfram að hlaupa með iljarfellsbólgu gæti hún versnað og batinn tekið lengri tíma. Farðu því gætilega.
Ég mæli með að þú takir þér hlé og jafnir þig þar til einkennin hafa minnkað. Til að halda þér á hreyfingu getur þú synt, hjólað eða stundað annað sem reynir ekki eins mikið á fæturna.
Algengt er að hlauparar með iljarfellsbólgu lendi í vítahring þar sem þeir hætta alveg að hlaupa þar til einkennin hverfa, fara svo allt of geyst af stað á ný og fá einkennin aftur. Til að komast út úr þessum vítahring getur þú gert æfingar sem auka álagsþol sinabreiðunnar, svo að hún þoli meira álag án verkja, og aukið hlaupamagnið smám saman.
Sem betur fer eru til ýmsar æfingar sem þú getur gert til að draga úr verkjum vegna iljarfellsbólgu og stuðla að heilbrigðari fótum. Mikilvægastar eru teygjur, styrktaræfingar og sjálfsnudd fyrir sinabreiðuna, kálfavöðvana og aðra vöðva í fætinum. Ég hef þegar skrifað grein um 7 mikilvægustu æfingarnar við iljarfellsbólgu.
Hafðu í huga að það skilar líklegast engum mælanlegum árangri að gera æfingarnar aðeins nokkrum sinnum. Þú þarft að halda þínu striki og gera þær vikum eða jafnvel mánuðum saman til að sjá verulegar framfarir, enda tekur endurhæfing vegna iljarfellsbólgu oftast 3–6 mánuði. Ef þú vilt byrja á áætlun við iljarfellsbólgu geturðu sótt Euneo-appið í dag og hafist handa.
Teiping er einföld og árangursrík leið til að draga úr verkjum og minnka álagið á fæturna. Hún styður við batann og getur jafnvel gert þér kleift að halda áfram að hlaupa. Teipingaraðferðir eru þó misgóðar. Nánari upplýsingar finnur þú í greininni um teipingu við iljarfellsbólgu.
Réttur skóbúnaður skiptir máli, bæði til að fyrirbyggja iljarfellsbólgu og meðhöndla hana. Leitaðu að skóm sem veita góðan stuðning og minnka álagið á sinabreiðuna. Ég mæli ekki með neinni ákveðinni tegund af skóm, því að það er mjög einstaklingsbundið hvað hentar hverjum og einum. Þú getur leitað ráða um ákveðnar tegundir á netinu. Þegar upp er staðið ættir þú að velja skó eftir því hvað þér finnst þægilegt og hvað þér líkar.
Hjá flestum minnka einkennin eða hverfa alveg á 3–6 mánuðum í endurhæfingu. Algengt er að verkir minnki strax í upphafi endurhæfingarinnar, en hjá sumum getur það tekið lengri tíma. Ef þú finnur enn fyrir verkjum eða skertri færni eftir að endurhæfingunni er lokið mæli ég með að þú leitir til heilbrigðisstarfsmanns.
Til að geta haldið áfram að hlaupa án verkja er mikilvægt að koma í veg fyrir að iljarfellsbólgan taki sig upp aftur. Góð ráð til þess eru meðal annars að auka hlaupamagnið smám saman, fylgjast með einkennum, hita upp fyrir hlaup og teygja reglulega. Mikilvægast af öllu er þó að þú haldir þig við æfingarnar þótt verkirnir séu horfnir, því að þannig heldur álagsþol sinabreiðunnar áfram að aukast og líkurnar á að vandamálið taki sig upp aftur minnka.
Iljarfellsbólga getur verið pirrandi meiðsli fyrir hlaupara og það er engin langtímalausn að taka sér einfaldlega frí í nokkra daga eða vikur. Nauðsynlegt er að gera það sem þarf til að ná tökum á vandamálinu og koma í veg fyrir að það taki sig upp aftur. Með því að fylgja ráðunum í þessari grein getur þú farið aftur að hlaupa án verkja. Mikilvægast er að þú haldir þig við æfingarnar. Með þolinmæði og þrautseigju getur þú sigrast á iljarfellsbólgunni og haldið áfram að ná markmiðum þínum í hlaupunum.
Reynsla fólks af appinu, með eigin orðum.
Einar Gunnar Thoroddsen
Ég hef notað appið í sex mánuði, fyrir og eftir aðgerð. Það er mikill ávinningur að nota það heima samhliða tímum hjá sjúkraþjálfaranum mínum. Mæli eindregið með því fyrir sjúkraþjálfara til að fylgja skjólstæðingum sínum eftir.
Orri Gautur
Núverandi sjúkraþjálfarinn minn notar Euneo og það hefur bjargað mér. Ég hef styrkst og öðlast sjálfstraust til að gera æfingar sem áður ollu mér verkjum og get nú gert þær verkjalaust!
Patrik Gunnarsson
Að haka við æfingarnar og fá áminningar gerir það svo auðvelt að standa við sitt. Ég tók gríðarlegum framförum og gat byrjað að æfa aftur eftir aðeins nokkrar vikur.
Gene Shannon
Appið hefur gefið mér skipulagða meðferðaráætlun sem er auðvelt að fylgja og heldur mér við efnið. Með skýrt æfingamarkmið á hverjum degi sé ég greinilegar framfarir viku frá viku.
Thorunn08
Ég hef alltaf átt erfitt með að muna hvernig sjúkraþjálfarinn sagði mér að gera æfingarnar sem ég fékk. Þetta app leysir það alveg, með útskýringum bæði í hljóði og myndbandi.
Oskar Einarsson
Frábær leið til að gera æfingarnar sínar í alvöru á hverjum degi. Með myndbandsdæmunum lærirðu að gera æfingarnar rétt. Það minnir þig á á hverjum degi.
Thordis1962
Ég ökklabrotnaði og þurfti að fara í aðgerð síðasta sumar. Með hjálp Euneo-appsins tók ég miklum og hröðum framförum. Þetta var frábær leið til að halda utan um meðferðaráætlunina mína.
Brynjar Bergsteinsson
Þetta app hjálpaði virkum 10 ára fótboltastrák að ná sér af iljarfellsbólgu (verk í hæl). Ég mæli eindregið með því.
Marta Magnúsdóttir
Þetta app hjálpaði mér loksins að losna við iljarfellsbólguna. Frábær kennslumyndbönd og mjög notendavænt app.
Signý Sif
Þetta app hefur gjörbreytt sjúkraþjálfuninni minni. Það veitir frábært skipulag og aðhald og gerir það auðvelt að halda sig við æfingarnar.
Gudjon Thorsteins
Mæli klárlega með því fyrir þá sem eiga erfitt með að fylgjast með framförum sínum!
SammiMK
Frábært app sem heldur mér við efnið í æfingunum. Einfalt í notkun og auðvelt að fylgja leiðbeiningunum.
Hlynur Guðmundsson
Fullkomið app

Sjö árangursríkar æfingar sem þú getur gert heima til að draga úr verkjum vegna iljarfellsbólgu.

Teiping getur skipt sköpum við iljarfellsbólgu. Hér lærir þú allt sem þú þarft að vita.